Bókin

LEYNIST DANSARI Í ÞÉR?

Dansgleði er fyrir alla, einstaklinga, pör, hópa, afa, ömmur og barnabörnin. Góð leiðsögn er um fyrstu skrefin í pardansi, hvort sem er í faðmi ástvinar eða félaga. Frumspor margra dansa eru kennd,t.a.m. salsa, jive, social foxtrot, skottís, cha cha cha og brúðarvals. Einnig er að finna úrval dansa fyrir hópa og einstaklinga sem vilja spreyta sig í djassdansi, ballett, diskó, vikivaka, grískum dönsum og mörgum fleiri dönsum. Dansar og leikir með fjölskyldunni, börnum og barna- börnum eru útskýrðir á lifandi hátt, t.d. skósveinadansinn, tarsandansinn og sacha. Loks geta skapandi einstaklingar stuðst við frábæra lýsingu á því hvernig maður býr til sinn eigin dans. Bókin er einstaklega góður leiðarvísir fyrir kennara á öllum skóla- stigum, sem vilja miðla dansgleði – eða jafnvel nota dans til að kenna íslensku og stærðfræði!

PRÓFAÐU, FRAMKVÆMDU OG NJÓTTU!