Sporhopp
Sporhopp eða valhopp eins og flestir nefna það er undirstaða dans og eðlileg hreyfing barna. Stigið er í annan fótinn, hoppað á honum og samtímis lyftist hinn fóturinn og er boginn. Við sjáum oft börn í leik og gleði sporhoppa /valhoppa um allt og því er hreyfingin mjög mikið notuð í danskennslu barna.